Sigga Rós og Hjalti

Monday, July 21, 2008

Á uppleið

Í dag er allt á betri veg hjá pabba. Hann losnar líklega af gjörgæslunni í dag og verður þá fluttur á hjartadeildina. Hann er núna laus undan súrefnisgrímunni og maskanum, fær bara súrefni í nefið, á mun auðveldara með að anda. Vökvalosunin gengur vel og í gærkvöldi var drenið tekið úr maganum á honum. Var með svona dren slöngu sem kom út úr maganum eða sárinu. Þannig að honum líður líka aðeins betur núna. Var búinn að reyna að setjast á rúmstokkinn og allt en það er mjög gott.

Þannig að þetta virðist nú vera á góðri leið núna, allt á uppleið :)

2 Comments:

  • Æðislegt að lesa góðar fréttir Sigga mín :-) Vonandi verður bataleiðin bara upp á við núna :-)
    Kveðja, Sandra Guðmunds.

    By Anonymous Anonymous, at 12:39 PM  

  • Gott að heyra að farið er að ganga betur :) Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með, vona að þið hafið það gott og að pabbi þinn haldi áfram á batavegi!
    kv. Brynja og co

    ps. ekki gleyma að fara vel með þig og bumbuna

    By Blogger Brynja, at 2:36 PM  

Post a Comment

<< Home