Sigga Rós og Hjalti

Monday, March 10, 2008

Kominn mars og enn snjóar!

Jæja þá er víst kominn mars mánuður og enn snjóar. Held að allir séu orðnir alveg einstaklega þreyttir á þessum blessuða snjó!

Við mamma vorum annars að koma af mjög merkilegri ráðstefnu sem fjallaði um heilastarfsemina, áföll og afbrigði. Þar var mjög klár maður, íslenskur talmeinafræðingur, sem er doktor við háskóla í USA. Hann var að kynna nýjustu rannsóknir á fólki með aphasia eða málstol. Einnig voru sýnd íslensk dæmi og allt var þetta mjög fræðandi og merkilegt. Hann er alveg ótrúlega merkilegur þessi blessaði heili okkar, alveg með ólíkindum. Svo dags daglega pælir maður ekkert í því hvernig hann virkar blessaður. Þetta líffæri sem heldur okkur gangandi alla daga, án hans værum við nú lítið og ekki má mikið út af bregða þar. En merkilegt var þetta nú.
Þarna voru samankomnir talmeinafræðingar og aðrir sem höfðu áhuga, meðal annars hittum við eina konu sem var aðstandandi líkt og við. Á hún bróður sem er 42 ára og fór mjög illa við heilablæðingu fyrir ári síðan og fær enga þjónustu í dag. Hann býr ekki í Reykjavík en var útskrifaður af Grensás og bara sendur á sjúkrahúsið í sínum bæ. Þar er endurhæfingardeild og talþjónusta í boði en hann fær ekkert af þessu. Maðurinn getur ekki séð um sig sjálfur því hann er með mikið verkstol. Honum var boðin íbúð á sambýli fyrir þroskahefta eða geðfatlaða....hugsið ykkur. Maður sem er með fulla greind en getur ekki vegna þessa áfalls tjáð sig bara boðið að búa með þroskaheftum. Þetta finnst mér nú ekki í lagi og við fundum það að þessi kona, systir mannsins, er í mikilli baráttu og átti erfitt með þetta. Oft er þetta barátta við kerfið, ótrúlegt!
Við grípum allaveganna alla þá þjónustu sem við fáum og munum sko ekkert gefa eftir þar.

Annars fóru svo mamma og pabbi í fermingarveislu í gær og svo var 4 ára afmæli hjá honum Sigurði Snæ hennar Díönu. Litli kúturinn bara orðinn stór stákur sem elskar Turtles og riddara, svo flottur og fínn í gær, í jakkafötum og með tvö sverð á á bakinu....eins og Leonardo Turtles kall :)

Kv.SRS

0 Comments:

Post a Comment

<< Home