Páskar í nánd
Senn líður að páskum sem eru óvenju snemma í ár. Ég segi nú eiginlega að þessir páskar hafi nánast komið aftan að manni....allt í einu var bara kominn tími á páskaföndur og páskafræðslu í skólanum og ég bara áttaði mig varla á því hve tíminn leið hratt, segi það enn og aftur, páskarnir í ár laumuðust aftan að manni hehe :)
Annars erum við nú að fara í skírn á laugardaginn hjá Litlu Borg, litlu dúllunni þeirra Hugborgar og Grétars. Alltaf gaman í skírnarveislum, svo spennandi eitthvað :)
Annars verða páskarnir líklega teknir í hið hefðbundna páskaeggjaát. Hjalti minn verður nú líklega upptekinn alla páskana í húsinu. Greyið hamast öll kvöld og helgar í húsinu svo við getum nú flutt inn fljótlega. Vorum nú einmitt að gantast með það að ef pabbi hefði ekki fengið áfallið þá værum við líklega löngu flutt inn! Hann var nefnilega búinn að bíða svo spenntur eftir að við fengjum húsið, veit að hann var orðinn spenntur að komast þar inn og djöflast eitthvað, eftir vinnu og svona. Hann var nú aldrei athafnalaus kallinn. En hann fylgist vel með og ég veit að hann langar einhver ósköp að vera með í þessu og djöfla þessu áfram.....en í staðinn tæklar Hjalti þetta bara einn og þetta tekur okkur aðeins lengri tíma. Það er allt í lagi, maður þarf nú ekki alltaf að flýta sér í lífinu. Ég keypti nú páskaegg handa vinnumanninum mínum, svona fyrir að vera svona svakalega duglegur :) Hann getur þá nartað í eggið á milli þess sem hann borar og neglir :)
Gleðilega páska.
SRS

4 Comments:
Já, þið komist nú inn fyrir rest. Annars var gott að þú tapaðir ekkert á veðmálinu við mig :)
kv.Helgi
By
Anonymous, at 9:00 PM
Síðast þegar ég kíkti hingað inn varstu úti í Kanada. Þanning að ég segi bara til hamingju með masterinn.
Er aðeins búin að lesa hérna hjá þér, gaman að geta fylgst aðeins með "gömlum" skólasystkinum. Gangi þér vel :-)
Kveðja, Hanna Lísa.
By
Anonymous, at 8:35 PM
This comment has been removed by a blog administrator.
By
Anonymous, at 7:37 PM
já það fer nú bara að styttast í næstu páska... ;)
By
Brynja, at 7:19 PM
Post a Comment
<< Home