Líf og fjör í Heiðmörkinni
Það er heldur betur líf í húsinu þessa dagana. Helgi, Auður Vala og börnin þeirra 3 komu í gærkvöldi. Auður er að fylgja fimleikahópi í keppnisferð og restin af familíunni fylgdi með. Þau fara síðan á morgun aftur til Egilsstaða. Það er því mikið fjör hér í húsinu núna :)
Pabbi og mamma fóru á þorrablót í gær með systkinum hans pabba, þótti þeim það nú bara gaman og gott.
Annars keypti mamma afmælisgjöfina hans pabba um daginn en hann á 60 ára afmæli núna í apríl. Hún ætlar að vera grand á þvi og bjóða honum til Krítar í tvær vikur. Þau fara með Ester og Jóni, vinum sínum úr saumaklúbbnum. Þau ætla að skella sér í enda maí. Þetta verður rosalega gaman hjá þeim og flott fyrir þau að fara í smá frí. Líka sérstaklega gott fyrir pabba, nú er gaman að hafa eitthvað til að stefna að og við finnum að hann er mjög spenntur. Hlakkar mikið til.
Þetta verður kærkomið frí fyrir þau bæði.
Af húsamálum okkar Hjalta að frétta, þá erum við nú formlega orðnir eigendur að þessum ágæta endaraðhúsakofa okkar og nú er bara að klára dæmið svo hægt sé að búa í húsinu góða. En það verður nú væntanlega ekki alveg strax, allaveganna ekki fyrr en kannski í apríl. En Berghólar 23 verður nýja heimilið.
Kv.SRS

2 Comments:
Til hamingju með kofann hann verður án efa mjög flottur.
Takk fyrir síðast og hlakka til að sjá ykkur næst.
kv. Herdís
By
Anonymous, at 10:49 AM
Til hamingju með þetta Sigga. Hlakka til að vera boðin í heimsókn :)
By
Berglind, at 7:44 PM
Post a Comment
<< Home