Sigga Rós og Hjalti

Friday, October 31, 2008

Ýmislegt að gerast


Já margt að gerast í þjóðfélaginu þessa dagana og þá er nú gott að vera bara lítill og geta brosað og haft bara áhyggjur af því hvort maður fái að drekka núna strax eða eftir eina mínútu hehe :) Hugrún Birna alltaf jafn yndisleg, alltaf svo góð en getur alveg látið heyra í sér.....henni er t.d. afskaplega illa við að láta klæða sig í sokka og lætur sko vel í sér heyra þegar slíkt er framkvæmt ;)

Það eru ákveðin tímamót hjá pabba núna. Nú á að minnka við hann á Grensás. Mamma fékk að vísu símhringingu um daginn, bara upp úr þurru, og læknirinn talaði þá bara um að hann yrði útskrifaður um mánaðarmótin! Við fengum auðvitað sjokk enda maðurinn engan veginn í stakk búinn til að vera útskrifaður. Hann var þarna einungis búinn að vera 5 vikur á dagdeild Grensás eftir hjartaaðgerðina, það tók náttúrulega sinn tíma að jafna sig á henni eða um 8 vikur. En svo var haldinn fundur á mánudag og þá gátu allir sagt sínar skoðanir á málinu. Við höfum auðvitað mestar áhyggjur af málinu og talþjálfun en það er enginn talmeinafræðingur starfandi hér á Suðurlandi, það var ein í Hveragerði en hún er hætt. En pabbi mun núna fara tvisvar í viku á Grensás, hina dagana færi hann þá í sjúkraþjálfun hérna á Selfossi til hans Jónda frænda en hann er farinn að vinna hérna á Selfossi núna. Hann gæti þá keyrt sig sjálfur þangað en hann er farinn að keyra aftur og gengur það mjög vel. En svo er spurning hvernig við getum tæklað talþjálfun, erum að vinna í því núna. Þetta er voða lengi að koma, málið en pabbi er með svokallað málstol og verkstol í munninum þannig að hann nær ekki að mynda hljóðin. Samt sér maður mun á honum og finnur að hann er í framför, þó hlutirnir gerist hægt.
Þetta var samt pínu skellur þessi umræða um útskrift. Veit samt alveg af hverju hún kom, nú fer nefnilega að verða komið ár frá því pabbi fékk fyrsta áfallið, þann 8. nóvember. Maður fær það svolítið á tilfinninguna að það sé einblínt á einhvern tíma í staðinn fyrir að horfa kannski á stærri mynd. Pabbi þurfti t.d. að byrja alveg á byrjunarreit í sumar þegar hann fór í hjartaaðgerðina en hann missti niður alla þá færni sem hann var búinn að ná upp. En þetta hlýtur að koma. Ég sá í sumar myndband af frásögn konu (sem var læknir) sem fékk svona áfall og missti málið og fleira og það tók hana 8 ár að ná sér að fullu. En það sást ekki vottur af neinu á henni þarna sem hún stóð og sagði frá. Þannig að hér er það þolinmæði sem dugar :)

1 Comments:

  • Gangi ykkur vel í baráttunni :-) Gott að þið eruð sterk og ákveðin, vitið hvað þið viljið og komið því á framfæri. Það getur nú skipt sköpum ;-)
    Gaman að heyra að pabbi þinn sé farnn að keyra aftur, það hlýtur að vera honum ánægjulegt :-)
    Bestu kveðjur í ykkar kot
    Sandra Guðmundsd.

    By Anonymous Anonymous, at 3:21 PM  

Post a Comment

<< Home