Sigga Rós og Hjalti

Sunday, August 17, 2008

Komin heim

Jæja pabbi er kominn heim af Grensás. Læknirinn spurði hvort okkur litist ekki vel á það að pabbi fengi bara að jafna sig heima eftir aðgerðina. Hann má í rauninni voða lítið gera í endurhæfingu strax þannig að læknirinn taldi það vera meiri lífsgæði fyrir hann að fá að vera heima og jafna sig þar frekar en að hanga á Grensás. Venjulega þegar menn fara í svona hjartaaðgerðir þá fara þeir heim af hjartadeildinni og eru að jafna sig í svona 7-8 vikur og mega þá fyrst fara í endurhæfingu. Þannig að pabbi er kominn heim núna. Mamma tók sér frí til að vera hjá honum. Hann verður heima til 8. september og fer þá á Grensás í endurhæfingu. Það er náttúrulega mun betra að jafna sig heima heldur en að hanga á Grensás allan daginn, hitta fáa og hafa í raun ekkert að gera. Heima er bara alltaf best. Hann má núna labba um með hækju en verður auðvitað að fara extra varlega upp á skurðinn og bringubeinið. Hann má ekki reyna að fara upp stigann strax og því færðu mamma og pabbi bara svefnherbergið niður í stofuna.
Það er gott að ólympíuleikarnir eru byrjaðir, pabbi horfir á bókstaflega allt sem sýnt er frá og er mikið spenntur yfir öllum greinum, var rosa spenntur í gær að horfa á badmington!!! Ég skildi það nú ekki alveg þó ég deili þessum ólympíuáhuga með föður mínum.....er meira fyrir að horfa á frjálsarnar og fimleikana :) En pabbi elskar þetta allt saman.

Við Hjalti fórum um síðustu helgi austur á Egilsstaði í heimsókn til Helga bróður og Auðar Völu. Rosa fín ferð og alltaf gaman að fara austur. Fórum m.a. á Borgó og í Sænautasel. Svo bárum við út Moggann með litlu blaðberunum, Ástu Dís og Alvari Loga :) Svo styttist í litla krílið, bara 4 vikur eftir!!!! Merkilegt hvað þetta er fljótt að líða, allir orðnir voða spenntir :) Svo byrjar skólinn bara á morgun, ég verð bara í sérkennslunni núna enda búin að yfirgefa bekkinn minn. Stefni á að vinna eins lengi og ég get, er alveg frísk og hraust svo það ætti nú ekki að vera vandamál.

Í Sænautaseli


Frænkurnar bregða á leik á leið heim frá Borgó


Bátarnir skoðaðir á Borgó

0 Comments:

Post a Comment

<< Home