Sigga Rós og Hjalti

Saturday, July 26, 2008

Kominn með gangráðinn

Í gær var ákveðið að setja gangráðinn í pabba. Aðgerðin átti að vera klukkan 13. Rúmlega 14 vorum við mamma fyrir utan Landspítalann og þá var hringt og mömmu sagt að þeir hefðu þurft að hætta í miðri aðgerðinni. Málið var að pabbi var farinn að fá Kovar blóðþynninguna aftur. Þeir byrjuðu að skera í hann og þá náttúrulega blæddi og blæddi þannig að þeir þurftu að hætta og senda hann aftur inn á hjartadeild þar sem hann fékk tvo poka af einhverju þykkingarefni. Síðan kl 15 þá héldu þeir áfram og náðu að græða gangráðinn í hann. Æ okkur fannst þetta nú svolítið klaufalegt, það stendur náttúrulega í skránni hans að hann sé að fá Kovar, virðist sem upplýsingarnar hafi eitthvað ekki farið alla leið. Aumingja pabbi, lá bara með grysju undir húðinni, hálfnaður í gangráðsaðgerð og með þykkingarefnið í æð. Hann tók þessu nú bara með jafnaðargeði og fannst við mamma vera að tuða yfir engu, en já við vorum nú kannski soldið pirraðar yfir þessu! Þetta tókst nú samt vel í seinna skiptið, pabbi var bara deyfður og fékk svo svefntöflu en hann var samt vakandi meðan þeir gerðu þetta. Hann var því svolítið þreyttur i gær.
Ég sé nú að þetta hefur tekið heilmikið á hann þessi aðgerð. Hann hefur grennst mikið, búinn að léttast um einhver fimm kg. Ég sé að þetta hefur tekið aðeins af honum núna. En nú ætti allt að verða komið í þessum aðgerðamálum. Nú er bara að jafna sig, hvíla sig vel og þá er bara að halda áfram í endurhæfingunni. Saumurinn lítur mjög vel út, svo nú þarf hann bara að passa að beita sér rétt, engan þrýsting með olnbogum eða neitt slíkt, má ekkert reyna á bringubeinið.

1 Comments:

  • hæ

    Ég hef ekki lesið hjá ykkur bloggið síðan 30. júní. Þvílíkur júlí mánuður hjá einni fjölskyldu.

    Ég hugsa mikið til ykkar.

    guðrún davíðs

    By Anonymous Anonymous, at 2:41 PM  

Post a Comment

<< Home