Sigga Rós og Hjalti

Thursday, October 23, 2008

7 vikna músalíus

Krúsin mín er orðin 7 vikna....úff hvað tíminn líður. Litla mús stækkar og stækkar og þyngist og þyngist. Þó hún hafi verið nett þegar hún fæddist er hún sko ekkert að tvínóna við hlutina. Spurning hvort hún hafi erft keppnisskap móður sinnar og keppist sem mest hún má við að þyngjast, þyngdist t.d. um 450gr á 6 dögum um daginn!!! Var í 6 vikna skoðun í vikunni, orðin 4950gr, 55cm og höfuðmál 38. Fæddist 3145gr, 49cm og höfuð 33.....geri aðrir betur hehe :) Sem sagt lítil bolla hér á ferð, og greinilega mikill rjómi hjá múttu túttu :)
Það styttist svo í skírn en við ætlum að skíra á sunnudaginn. Kjóllinn sem ég heklaði tilbúinn og amma Esther búin að kaupa prinsessukjól á dömuna til að vera í veislunni.

Litli sperrileggur :)


Gott að kúra hjá pabba

2 Comments:

  • Hún er alveg yndisleg. Hlakka svo til að sjá hana um jólin.

    Til hamingju með fallega nafnið.

    Kveðja
    Helga Lillian.

    By Anonymous Anonymous, at 7:11 PM  

  • Hvað heitir hún svo? Til hamingju með daginn:

    By Blogger H�lmfr��, at 10:00 PM  

Post a Comment

<< Home