Æfingar byrjaðar
Það gekk mjög vel hjá pabba heima um síðustu helgi, gekk eins og í sögu. Þetta var mikil tilbreyting að komast heim, þó svo að pabbi gæti ekki farið um allt og þyrfti mikla hvíld þá er það bara þannig að það er alltaf best heima. Mamma og pabbi voru bæði orðin svo leið á Grensás, mamma var farin að gróa föst við húsgögnin þarna. Þau hefðu alveg myglað úr leiðindum hefðu þau ekki fengið þetta helgarleyfi.
Í gær var pabbi miklu hressari. Hann leit betur út, mun orkumeiri og var bara miklu glaðari og ánægðari. Hann sagði okkur að hann hefði verið í æfingum um morguninn en við hittum hann rétt eftir hádegi. Hann hafði þá farið í talþjálfun og sjúkraþjálfun. Mjög gott að prógramið er byrjað aftur. Hann var líka svo ánægður með að vera byrjaður aftur í þjálfun. Hann fær að fara aftur heim um helgina. Mamma er enn með sjúkrarúmið niðri og allt er klárt. Hann fær því að fara heim á föstudaginn og verður alla helgina heima.
Það er voða gott að sjá hann svona orkumeiri og líta betur út. Búið að vera erfitt að sjá hann svona veikan. En nú fer þetta vonandi allt að smella, æfingar að byrja sem er náttúrulega bara frábært. Það styttir nú líka stundirnar á Grensás að komast í æfingar, tala nú ekki um að komast heim um helgar.

1 Comments:
Frábært að þetta er farið að ganga betur :)
By
Vala, at 8:51 AM
Post a Comment
<< Home