Orðin þriggja vikna
Takk fyrir kveðjurnar :)
Fröken fallegust er orðin þriggja vikna...ótrúlegt hvað tíminn líður. Finnst eins og ég hafi átt hana í gær! Hún er náttúrulega alltaf jafn mikil draumadís, svo yndisleg og góð og alltaf jafn falleg :) Finnst lang best að sofa og svo auðvitað drekka. Við Hjalti erum alveg í skýjunum með hana. Hjalti tók tvær vikur í orlof og er því farinn að vinna aftur. Var nú svolítið erfitt að vera í burtu frá músinni allan daginn, en hann knúsar hana þeim mun meira á kvöldin.

Af pabba er allt gott að frétta. Hann er nú svo ánægður með litlu músina og amman auðvitað líka. Koma sko oft og knúsa hana enda knúsuleg litla snúllan. Eftir fríið hjá pabba heima var hann lagður inn á Grensás í eina viku. Þessi vika gerði nú heldur betur mikið fyrir hann. Eftir vikuna gat hann t.d. labbað upp stigann heima sem hann gat ekki eftir að hafa farið í hjartaaðgerðina. Hann fer núna með Hjalta á morgnana og svo heim seinnipartinn, svona eins og hann gerði áður. Mér finnst þetta nú allt vera á uppleið. Mér finnst hann farinn að tala meira og maður skilur líka meira af því sem hann segir. Kannski erfiðara fyrir þá sem ekki þekkja hann en þetta er svipað og óskýr börn, þeir skilja sem umgangast barnið mest. Stundum ruglast nú aðeins það sem hann ætlar að segja og virðist oft sem eitthvað stoppi og hlutirnir bara komist ekki út en þetta hlýtur nú bara að koma á endanum. Hann þurfti náttúrulega að byrja alveg upp á nýtt, nánast frá grunni eftir aðgerðina. En hann er hress og kátur eins og hann er vanur og voðalega stoltur og ánægður með nýjasta barnabarnið.....það tíunda í röðinni :)

4 Comments:
Til hamingju med prinsessuna. Hún er gullfalleg, værum alveg til í að knúsa hana en það verður víst að bíða fram í desember.
Knús frá Danmörku,
Helga Lillian og Elli.
By
Anonymous, at 8:25 AM
Já og frábærar fréttir með að það sé allt á uppleið! Vonandi heldur þetta svona áfram. Hlakka til að sjá framförina um jólin:)
Helga Lillian
By
Anonymous, at 8:26 AM
hún er rosalega sæt, og myndin af ykkur mæðgum þar sem þú ert að hekla frábær :) þér fellur greinilega ekki verk úr hendi!
Það verður gaman þegar við getum hist með skvísurnar :)
By
Brynja, at 10:31 AM
Elsku Hjalti og Sigga.. Við heimtum myndir af litlu frænku.. Bestu kveðjur, Hugborg Erla
By
Anonymous, at 1:17 PM
Post a Comment
<< Home