Sigga Rós og Hjalti

Thursday, July 31, 2008

Grensás

Pabbi var fluttur á Grensás á mánudaginn. Nú er hann bara að hvíla sig og safna orku. Endurhæfingin er ekki byrjuð, vitum ekki alveg hvenær það fer allt saman í gang. Hann er mjög duglegur að fara fram úr og labba um gangana en verður að nota göngugrindina í það til að reyna ekki á beinið eða saumana. Hann verður því að vera mjög meðvitaður um allar hreyfingar og líkamsstöðu. Hann virðist vera mjög orkulítill og þreyttur eftir þetta allt saman en það er víst bara eðlilegt hjá fólki sem fer í svona aðgerðir. Svo er bara að byrja á endurhæfingunni aftur af fullum krafti.
Mamma fer til hans á hverjum degi. Er farin að vinna núna, byrjaði að vinna í gær og fer svo í bæinn eftir vinnu. Það er heilmikið álag líka, þetta hefur tekið á alla, sérstaklega hana.
Barnabörnunum hlakkar líka til að hitta afa sinn, eru alltaf svo blíð og góð við hann þessa elskur. Þegar einum 4 ára pjakknum var sagt að afi þyrfti að fara í aðgerð á hjartanum þá spurði hann hvort afi yrði aftur afi, eins og hann var. Greyin, þau muna náttúrulega alveg eftir afa sínum fyrir áfallið og sakna hans. Ætli þau óski þess ekki innst inni að hann verði einhvern tímann eins og hann var, svona alveg eins og við hin. Afi sem var alltaf segjandi tröllasögur og í tröllaleik í garðinum, leikandi við krakkana sem öll dýrkuðu afa sinn. Hann á eftir að segja tröllasögurnar aftur.....það mun bara taka tíma, ég hef trú á því.

1 Comments:

  • Sendum góðar kveðjur til ykkar allra frá USA. Okkur hlakkar mikið til að koma í næstu viku og knúsa alla vel og lengi!!!
    Ég er sammála Sigga, hann á eftir að segja Tröllasögur aftur, engin spurning.
    Bestu kveðjur,
    Guðrún Erla og Co.

    By Anonymous Anonymous, at 1:22 PM  

Post a Comment

<< Home