Sigga Rós og Hjalti

Sunday, February 10, 2008

Ófærð

Pabbi og Hjalti lentu nú heldur betur í veðrinu sl. fimmtudag. Þeir komust í bæinn en því miður ekki heim því Heiðin var lokuð sem og Þrengslin. Þeir þurftu því að gista í Reykjavík, nánar tiltekið í Hafnarfirði þar sem barnabörnin þustu í kringum afa sinn af kátínu. Næsta dag var búið að opna Þrengslin þannig að heim komust þeir og voru auk þess með tvo aukafarþega með sér, krakkana hennar Díönu, þau Sigurð Snæ og Andreu Rós. Krakkarnir voru í helgarleyfi hér hjá okkur. Heimferðin gekk því vel. Við vonum nú bara að þessu veðri fari nú að slota, heldur betur leiðinda færð þessa dagana. Pabbi lætur það nú ekki aftra sér frá gönguferðum og gekk aleinn stóran hring í gær með skíðastafina sína sem vinnufélagi hans, hún Klara, gaf honum.

Það var gaman að hafa krakkana hjá okkur um helgina. Siggi litli spilaði fótbolta við afa sinn og Andrea Rós var kát og fjörug. Í gærkvöldi var mömmu og pabba boðið í mat til vina sinna þeirra Esterar og Jóns. Í dag var svo haldið í kirkju. Mamma og pabbi sátu messu en ég fylgdi börnunum í Sunnudagaskólann. Allir kátir og glaðir eftir helgina.

Hún Beta okkar á svo afmæli í dag, orðin 36 ára kellan. Við óskum henni til hamingju með daginn.

Kv. SRS

1 Comments:

  • Hæ
    Takk fyrir afmæliskveðjuna til Dagmarar..Þú auðvitað algjört gull að muna :)

    kveðja,
    guðrún

    By Anonymous Anonymous, at 10:35 AM  

Post a Comment

<< Home