Eitt ár liðið
Í dag er liðið eitt ár frá því pabbi fékk heilablóðfallið. Skrýtin tilhugsun að eitt ár sé liðið. Stundum finnst mér sem tíminn hafi verið svo lengi að líða þetta ár en samt er þetta allt saman ljóslifandi í minningunni og eins og það hafi gerst í gær. Það er tregablandið að rifja upp þennan tíma fyrir ári síðan. Ég man þetta allt saman mjög vel, næstum of vel finnst mér stundum.
Þetta gerðist á fimmtudegi og ég sem hélt að þetta yrði bara einn ósköp venjulegur fimmtudagur þennan morguninn fyrir ári síðan. Ég var nýkomin heim af táknmálsnámskeiði um kl 20 og var að ljúka við að borða kvöldmatinn þegar pabbi settist í stólinn fyrir framan mig. Hann var með skrýtið augnaráð en ég pældi ekkert í því, hann fór síðan að anda mikið til að ná athygli minni og ég sagði bara "hva hvað er eiginlega að þér" og hélt hann væri eitthvað að djóka í mér. En málið fór greinilega fyrst og svo horfði ég á andlitið og hvernig lömunin kom yfir hann og um leið og munnvikið fór niður gólaði ég og Hjalti hringdi á sjúkrabílinn. Þessar mínútur sem liðu voru eins og klukkutímar og á meðan gátum við ekkert gert, ég sá bara hvernig lömunin færðist yfir líkamann. Þetta er sú alversta tilfinning sem ég hef upplifað, að geta ekkert gert og horfa á pabba veikjast svona. Ég gat bara staðið við hlið hans.
En það hefur margt gerst á þessu eina ári og eins og mamma sagði þá er dagurinn í dag þakkarhátíð fyrir okkur. Við getum þakkað fyrir að pabbi er á lífi og er hérna með okkur. Hann hefur sýnt ótrúlegan dugnað og hugrekki í baráttunni og lætur aldrei deigan sýna. Hann hefur aldrei sýnt sjálfsvorkunn og leggur sig allan fram um að lifa lífinu. Á þessum tíma hefur hann gengið í gegnum svakalega hluti, endurhæfinguna og ég tala nú ekki um hjartaaðgerðina sem átti náttúrulega að vera löngu búið að gera. En hann sýnir framfarir og hetjuskap á degi hverjum. Við trúum því statt og stöðugt að hann muni ná sér, við finnum viljann og vitum að ef einhver getur þetta þá er það hann.
Hann er magnaður hann pabbi, hann er hetjan okkar allra enda besti pabbi og afi í öllum heiminum :)
Á einu ári höfum við upplifað allar gerðir tilfinninga. Sorg, reiði, biturleika og síðast en ekki síst mikla hamingju í gegnum litla mannveru sem færir manni bara gleði og birtu alla daga :) Við höfum margt að þakka fyrir, það er nauðsynlegt að þakka fyrir það sem maður á og einblína á jákvæðar hliðar lífsins, las það einmitt í The Secret bókinni.
Ég er e.t.v. orðin óskaplega væmin en ég er nú einu sinni nýbúin að eignast barn ;)

2 Comments:
Elsku Sigga Rós mín, fann allt í einu bloggið þitt þegar ég var að vafra þetta um á netinu - og mikið þykir mér vænt um að fá að fylgjast svona með ykkur.
Það er svo sannarlega hverju orði sannara hjá þér að við höfum svo mikið að þakka fyrir í lífinu, það eru ekki þessir veraldlegu hlutir sem gefa okkur gleði heldur hitt að fá að njóta samvistir með okkar nánustu og fólkinu sem okkur þykir svo vænt um. Já, hann pabbi þinn er sko mikil hetja og gull af manni.
Og hjartanlega til hamingju með litlu prinsessuna og fallega nafnið hennar.
Knús og stórt faðmalg til ykkar allra kæra frænka.
Hafdís Jónst.
By
Anonymous, at 10:41 PM
Sæl og bless,
Fyrst af öllu vil ég óska ykkur til hamingu með dóttur ykkar.
Að öðru leyti vil ég koma kveðjum til föður þíns sem kíkti aðeins við í Blaze um daginn.
Ég kom þangað einn daginn í gegnum lagerinn (í kjallaranum) og heyrðu að Tína var í hrókasamræðum við einhvern svo ég ákvað að kíkja eðeins upp. Og þar sat Siggi í rólegheitunum í sófanum og ég hafði mikið gaman af því að heilsa upp á hann. Því miður var ég á hraðferð svo ég náði ekki að spjalla neitt en tók strax eftir því að hann var ótrúlega skýrmæltur og greinilegt að hann er að taka stórum framförum.
Viljum bara óska ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar.
Kv,
Gunnar & Tína
P.S. Það er alltaf heitt á könnunni hjá okkur á Austurveginum hvort sem erindið er spjarir eða bara spjall.
By
Anonymous, at 2:36 AM
Post a Comment
<< Home