Hugrún Birna orðin 10 vikna
Litla skonsan okkar er orðin 10 vikna, alltaf jafn dugleg og blæs út og komin með ansi kyssilegar bollukinnar :) Litla músin er voða sæt, ansi lík pabba sínum og jú jú hann er nú nokkuð sætur líka hehe ;) En forvitnina hefur músin nú erft frá móður sinni! Uppáhaldsstaðan hennar er á öxlinni, þá sperrir hún sig upp og horfir allt í kringum sig.....og svo fer mín sko ekkert að sofa fyrr en aðrir fjölskyldumeðlimir hypja sig upp í rúm svona til að missa nú ekki örugglega af neinu haha. En hún er enn jafn vær og góð, sefur út á hverjum morgni og bara mjög mikið yfir daginn. Finnst voða gott að sofa í vagninum sínum og sefur iðulega í 3 1/2 tíma! Ég er þá búin að fara nokkrum sinnum út og tékka hvort barnið andi nú ekki örugglega....svo stundum er síðasti hálftíminn tekinn hér inni í forstofu þegar mömmunni líst ekkert á að vera með barnið úti og komið myrkur!!! Þetta er bara æðislegt.

2 Comments:
Vá mér finnst hún svaka lík pabba sínum á þessari mynd! Við verðum að fara að til ykkar í heimsókn næst þegar við komum austur, held að guðfaðirinn sé farinn að sakna Hugrúnar Birnu :)
Kveðja, Magga.
By
Anonymous, at 12:14 AM
Hún er greinilega draumabarn..kíki á ykkur næst þegar ég er á Selfossi
By
H�lmfr��, at 9:19 AM
Post a Comment
<< Home