Gleðilegt nýtt ár
Á áramótum er ágætt að hugsa til baka og rifja upp minningar, góðar og slæmar. Á hverjum degi ársins upplifum við ýmislegt, sumt verður eftirminnilegt annað ekki. Sumir hlutir eru eftirminnilegir sem fremur sárar minningar, aðrar sem góðar og skemmtilegar minningar. Allt er þetta reynsla sem mótar og styrkir okkur sem einstaklinga.
Þetta ár var tími uppbyggingar, erfiðleika og ánægju. Gleði, sorg, reiði og biturð eru tilfinningar sem hafa snert hjörtu okkar en ekkert gleður hjarta okkar meira en litla stúlkan okkar, sem er yndislegust í öllum heimi og ljómar sinni yndislegu tilveru. Hæst ber auðvitað fæðing litlu dömunnar í september byrjun. Það bar skjótt að og kom hún í heiminn á ógnarhraða í verkfallsbyrjun. Þar vorum við nú heppin og glöð að fá aðstoð ljósmóður við fæðingu hennar og þakklát erum við fyrir að eiga heilbrigt barn. Við fluttum líka í húsið okkar sem okkur líður endalaust vel í, þó að við séum ekki búin að klæða í loftin né setja á gólfin :) Við fórum líka til Luxembourgar að heimsækja elskulega vini okkar og til Þýskalands að hitta góða frænku, hana Mundu og allt hennar fólk. Þetta var skemmtilegt frí og við nutum þess mjög.
Pabbi og mamma áttu erfitt ár en standa þó uppi glöð og ánægð. Pabbi varð 60 ára á árinu og var svo gaman að sjá hve margir komu til að fagna með honum. Þau náðu líka að fara til Krítar með vinum sínum áður en skellurinn kom. Pabbi þurfti að gangast undir mjög stóra og mikla hjartaaðgerð. Þessi tími var mjög erfiður öllum, sérstaklega mömmu en þetta er um garð gengið og nú er tími til byggja sig upp. Það gengur vel. Pabba líður vel, er alltaf kátur og glaður. Hann sýnir mikið æðruleysi,heldur jákvæðu hugarfari alla daga og er ávallt glaður í skapi. Sýnir aldrei pirring eða neikvæðni í okkar garð enda hefur hann alltaf verið jákvæður að eðlisfari. Nú fer hann 2x í viku á Grensás og svo í þjálfun til Jónda 3x í viku. Hann keyrir um, fer í búðir og gerir bara það sem hann vill og getur. Hann er mjög duglegur. Málið er enn það erfiða. Það kemur hægt og rólega, mun taka langan tíma en miðað við hversu alvarlegt þetta áfall var þá er í rauninni ótrúlegt hvað hann getur. Í raun var það kraftaverk að hann skyldi lifa þetta mikla áfall af. Við trúum á framfarir, lífið er ótrúlegt og við vitum aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér. Reynum að njóta hverrar stundar sem lífið gefur.
Óskum ykkur alls hins besta á nýju ári. Megi friður og farsæld fylgja ykkur öllum. Með þökkum fyrir allt hið liðna og jákvæðar og uppbyggjandi athugasemdir hér á blogginu :)
Gleðilegt ár :)
Kv. Sigga Rós

0 Comments:
Post a Comment
<< Home