Sigga Rós og Hjalti

Friday, December 05, 2008

þriggja mánaða!

Jæja þá er litla músin okkar orðin 3ja mánaða, fjúff hvað tíminn líður! Hún er alltaf jafn yndisleg, sefur vel og er brosmild og kát. Hún þyngist og þyngist og er farin að taka verulega í.....mamman verður komin með góða upphandleggsvöðva innan tíðar hehe ;) Það er 3ja mánaða skoðun hjá okkur í næstu viku, verður spennandi að vita hve þung hún er orðin. Svo er líka fyrsta sprautan þá, snökt snökt, spurning hver á eftir að grenja meira, ég eða hún! Allaveganna gott að vera með góðar fellingar....finnur maður þá ekki minna fyrir þessu hehe ;)
Svo er stefnan tekin á ungbarnasund eftir áramót, erum búin að skrá okkur hjá Guggu og vonandi getum við byrjað í janúar. Það verður rosa gaman, Hugrúnu Birnu líkar allaveganna mjög vel baðtíminn....svona nema þegar kemur að því að þurrka manni...þá er öskrað hátt hehe ;) Annars er hún óskaplega forvitin, finnst best að sitja í ömmustólnum og fylgjast með manni stússast eitthvað. Líkar alveg einstaklega vel inni á baði og er svaka kát að fylgjast með manni þar inni, greinilega eitthvað góður andi þarna inni....eða kannski það að hún fæddist næstum þarna hahahaha, eitthvað kunnuglegt :)

Siggi litli fékk að gista og það er auðvitað lestrarstund :)


Litla daman í kjól

0 Comments:

Post a Comment

<< Home