Bráðum 6 mánaða
6 mánaða aldurinn nálgast hratt hjá litlu dömunni. Ekki skilur maður hvað tímanum líður....flýgur hjá á ógnarhraða. Fyndið samt hvað tíminn getur verið afstæður. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem við hraðkeyrðum á sjúkrahúsið og fengum barn í hendurnar 20 mín síðar og svo stutt síðan við vorum með krílið okkar hérna heima, aðeins 7 tíma gamla! Meðgangan leið rosalega hratt og tíminn með litlu Rúninni okkar svo fljótur að líða. Mér finnst líka mjög stutt síðan við fluttum heim frá Kanada en samt finnst mér ótrúlega langt síðan pabbi veiktist og síðan að Díana og Sigurjón skildu! Skrýtið, það er eins og atburðir sem eru erfiðir séu lengur að líða en það góða flýgur hjá. Merkilegt að þó maður sé að upplifa góða atburði um leið og slæma þá virka þessir erfiðu miklu lengra í burtu heldur en það skemmtilega. Svona er þetta skrýtið, bara alveg eins og þegar maður var lítill. Þá fannst manni tíminn stundum alveg ótrúlega lengi að líða og svo þegar það var gaman þá var allt strax búið, sbr jólin :) Já, hann er skrýtinn þessi litli heili okkar :)
Hugrún Birna snúllurófa vex og dafnar. Er með mikil og góð læri, þyngist og lengist. Orðin algjör sunddrottning, kafar eins og fiskur og elskar orðið sundið. Hlær og skríkir og farin að þekkja umhverfið, veit sko alveg hvar við erum þegar við löbbum inn í sundlaug.
Stúlkan er líka farin að vita hvað hún vill....farin að vakna svona undir morgun, bara til að fá að kúra uppí hjá mömmu og pabba ;) Líka svo notalegt að hafa hana hjá sér. Barnið ákvað að taka sko ekki pela, ákvað heldur að svelta sig og bíða eftir múttu túttu heldur en að sjúga eitthvað plastdrasl! Þannig að múttan kemst nú ekki langt frá skvísunni.
Tærnar eru orðnar hið skemmtilegasta leikfang og sýgur hún þær af bestu lyst....hver slær ekki hendinni á móti góðri stórutá hehe ;) Móður sinni til mikillar gleði þá velti barnið sér í vikunni.....af maga og yfir á bak. Held hún hafi nú gert þetta svona meira óvart, enda mjög hissa á svipinn (gæti líka hafa verið ástæða að móðirin fagnaði af ákafa og með látum hehe). Annars nennir hún lítið svona veltum og sýnir litla tilburði til slíkra verka. Vill miklu frekar standa í lappirnar....enda með lærin í það hehe. Henni finnst líka rosa gaman að sitja í vagninum og fá að sjá út, horfir og horfir enda forvitin eins og mamma sín. Líka mjög góð í bíl og mjög kát þegar hún fer í gallann og bílstólinn :)
Svo er Hlöðutúns afi að fara í prófkjör....og verða afastelpurnar að hjálpa afa gamla í bílskúrnum....ekki erfitt fyrir þær skvísur að fanga hylli kjósenda ;)

3 Comments:
Er í alvörunni tvö ár í vor síðan þið fluttuð heim?
Ég er eitthvað að hugsa þetta og þurfti að nota stærðfræðina til þess að sannfærast 2009 - 2007 = 2. Ótrúlegt.
Hugsa sér að stelpan sé orðin 6 mánaða - fer bráðum að sitja :).
Svo er það furðulega hef ég heyrt að þó maður sé alveg gáttaður á hvað tíminn líður hratt núna, þá ku hann víst líða enn hraðar eftir því sem maður eldist. Núna er alltaf kominn föstudagur áður en maður getur snúið sér við, en þegar gráu hárin koma þá eru alltaf áramót!
Gaman að lesa um dísina..þessar lýsingar verða síðan algjör gullkista þegar fram líða stundir því þá man maður ekki boffs hvað gerðist hvenær.
kv.
guðrún davíðs
By
Anonymous, at 9:29 PM
Já ótrúlegur þessi tími!!! Efast ekki um að tíminn muni bara líða enn hraðar þegar fram líða stundir...ég er eiginlega ekki að kaupa það að Dagmar sé orðin 4 ára!!!
By
Sigridur Ros, at 10:20 AM
Ég er sko sammála þér Sigga mín. Tíminn líður oft á tíðum svo hratt og einmitt sérstaklega þegar góðir hlutir gerast. Merkilegt að stúlkan sé að verða hálfsárs hugsaði þér það þýðir rúmt ár síðan kraftaverkið varð til :) Minn var einmitt eins árs um daginn. En hafið það ávallt sem best. Kveðja frá Vík, Kolla.
By
Anonymous, at 10:20 AM
Post a Comment
<< Home