Alveg að verða 7 mánaða
Ég held að ég muni hljóta bloggverðlaun ársins...á eiginlega ekki skilið að vera með bloggsíðu þar sem ég blogga nánast aldrei! En lífið líður hjá á ógnarhraða eins og alltaf. Hugrún Birna sprelligosi er alveg að verða 7 mánaða. Litla snót er nýkomin með tönn. Tönnin litla er að gægjast uppyfir tannholdið, er flugbeitt, ég segi að þetta sé hákarlatönn svo beitt er hún haha. Músin farin að sitja, situr sperrt, horfir í kringum sig og leikur sér. Ekki nennir hún að velta sér ljúfust, gerði það þarna nokkra daga í röð (af maga yfir á bak), sá síðan að það væri nú lítið varið í þennan gjörning og hætti snarlega. Mun betra að kalla bara á mömmuna, enda býr maður ekki á 4 stjörnu hótelin fyrir ekki neitt ;) En hvað um það, litla rólegaheita daman okkar er heilbrigð og fín. Fékk að vísu svæsna eyrnabólgu, eftir marga hitatoppa, hringingar og heimsókn á læknavaktina þá fékkst niðurstaða hjá HNE lækni, eyrnabólga var það! Við erum því búnar með fyrsta sýklalyfjakúrinn sem dömunni fannst hreint út sagt viðbjóður! Húsráðin hrannast upp í bankanum mínum...búin að ná mér í fótakrem frá mirandas og svo á ég ólífuolíu ;)
Mamma og pabbi eru flutt í Laxabakka...já Heiðmörkin bara seld og þau flutt. Yndislegt hús á einni hæð, rosa flott og bara alveg frábært fyrir þau. Þeysast um á einni hæð. Búið að fara í gegnum 32 ára dótasöfnun Heiðmerkurinnar hehe, ansi margir ruslapokar farnir á haugana. En nauðsynlegt að taka til og losa aðeins dót. Þau eru rosalega ánægð með nýja húsið og Brandur karlinn virðist höndla þetta vel. Samt pínu skrýtið að horfa á eftir Heiðmörkinni...ætli maður eigi nú ekki eftir að rúnta framhjá stundum ;) En nú er það bara amma og afi LAX!!!

4 Comments:
Er Brandur enn lifandi?! ;-)
Kv. Sandra
By
Anonymous, at 9:04 PM
auðvitað...köttur af eðalkyni ;)
By
Sigridur Ros, at 4:59 PM
Já heldur betur....
By
Anonymous, at 8:44 PM
Þú allavega bloggaðir 1.apríl :)
By
Njörður, at 10:32 AM
Post a Comment
<< Home